
Við bjóðum þér í öruggt rými, í nærandi félagsskap, helgina 9 - 11 apríl í Lótuslandi við Úlfljótsvatn.
Þú átt von á:
- Yin yoga
- Slökun og hvíld
- Verkfærum til að tengjast þínu innra sjálfi
- Athafnir og tól sem lyfta orkunni þinni
- Heilnæmum grænmetisréttum
Við leitum að konum sem eru opnar fyrir nýrri upplifun og lærdómi. Sem eru óhræddar við að kynnast sjálfri sér og tilbúnar að virkja aflið innra með sér.
Settu sjálfa þig í fyrsta sæti og gefðu þér endurnæringu á líkama og sál.
Ef þetta kallar á þig fylltu út umsóknina hér að neðan og við munum hafa samband.



Um leiðbeinendur:
Sara Barðdal
Er stofnandi HiiTFiT.is, ÍAK einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi frá Institute of Integrative Nutrition. Hún hefur unnið með að hjálpa konum breyta um lífsstíl síðan 2014. Síðustu ár hefur Sara sótt fjölmörg námskeið og vinnustofur sem tengjast andlegri heilsu, hugarfari, hugleiðslu og öndun. Hún tók 50 klst yin fascia yoga nám á síðasta ári og er skráð á 500 klst yoga nám á árinu sem leggur áherslu á andlega þáttinn í yogafræðunum, heilun og umbreytingu.
Sara heldur úti lifandi online samfélagi þar sem hún kennir konum um hugarfar, hreyfingu, hugleiðslu og heilbrigt mataræði. Sara hefur sjálf persónulega reynslu á að fara í gegnum langtíma streituástand og vinna sig útúr því, sem fól í sér mikla sjálfsækt og endurskoðun á lífinu sínu og áherslum.
Guðrún Birna le Sage de Fontenay
Er markþjálfi, yoga- og heilræktarkennari og stofnandi Ahamóment. Hún lærði heilræktarkennarann hjá Guðna Gunnarssyni í Ropeyogasetrinu og vann síðar með honum í vefnámskeiðinu Máttur athyglinnar.
Hún hefur mikinn áhuga á meðvituðu og virðingarríku uppeldi og hefur haldið úti foreldrafræðslu um efnið, ásamt félaginu Meðvitaðir foreldrar. Einnig hefur hún haldið fyrirlestra og námskeið um uppeldi og tekið þátt í hlaðvarpinu Virðing í uppeldi. Guðrún Birna gaf út sína eigin þáttaröð, viðtöl við Fyrirmyndir & skapara í samnefndum þáttum á Youtube og síðunni Ahamóment.